Blogg Veröld Lebba Kex
19.08.2004 23:52:11 / leo3

Ég á afmæli í dag

FJARLÆGT...!!!

Nú á dögunum fékk ég símtal þess eðlis að ef ég fjarlægði ekki hluta þessarar færslu þá hlyti ég verra af.

Burt séð frá eðli hótunarinnar þá vill ég koma því á framfæri að finnist hér einhver skrif um einstakling, stofnun, fyrirtæki, atburð eða bara hvað sem er, sem einhverjum kann að þykja óviðeigandi með öllu, þá er um að gera að hafa samband við mig og ég mun skoða málið hið snarasta.

Kveðja og þökk
Leó Leós

» 107 hafa sagt sína skoðun

17.08.2004 23:32:36 / leo3

Maður lifandi...

Maður lifandi hvað ég er búinn að vera lélegur að blogga. Alveg hreint handónýtur. Það er samt ekki eins og það sé búið að vera mikið að gera hjá manni. Vinna, borða, championship manager, sofa. Þannig er dagurinn hjá manni. Reyndar er ég búinn að eyða mestum mínum tíma í að horfa á ca. 20 sjónvarpsstöðvar. Já ég er nefnilega kominn með stöð 2, Sýn, bíórásina og fjölvarpið og er með eindæmum sjónvarpssjúklingum og það hefur tekið mest allann minn tíma. Ég veit að það er sorglegt. Það er eiginlega sárgrætilegt að maður á mínum aldri skuli lifa svona mikið fyrir sjónvarp eins og ég geri. Ég ætla samt að reyna að bæta þetta hjá mér og gera eins og ég gerði. Þ.e.a.s. úthluta einum klukkutíma á degi hverjum til að bulla eitthvað hérna. Trúið mér, ég er með fullt af brjáluðum hugmyndum til að deila með ykkur. Eintómar Larry Flynt hugmyndir. Heyrumst... L.Kex

» 0 hafa sagt sína skoðun


Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
RSS tengill